Þarfir netsins
Útdráttur
Sú fallvatnsorka sem seld hefur verið til stóriðju hefur skilað óverulegum hagnaði og fyrirséð er að hún mun ekki skila verulegum hagnaði nema dregið verði úr skuldsetningu raforkufyrirtækjanna. Söluverðið er þekkt og að hluta til fast. Væntingar um að stóriðja verði leið til að styrkja iðnað í landinu og auka fjölbreytni útflutnings hafa snúist upp í andhverfu sína. Stóriðjugeirinn skapar ekki fjölda starfa og margföldunaráhrifin eru ekki mikil. Þjóðhagslseg áhrif eru mest á byggingartíma virkjananna. Niðurstaðan er að virkjun fallvatna hefur skilað litlu; orkusölu til fimm fjölþjóðafyrirtækja og óverulegum skatttekjum, utan tímabundins orkuskatts sem nú hefur verið aflagður. Fræðileg nálgun er að mestu sótt til Max Weber; annars vegar tilgátunnar um yfirburði regluveldisins, læsingu ákvarðanatöku í járnbúr, og hins vegar um að markleitin skynsemi, verkfærnin, geti umpólast þannig að leiðin verði að markmiði. Þannig hefur virkjun og orkuveita orðið að sérstakri atvinnugrein sem hefur eigin vöxt að markmiði undir yfirskini arðsemi. Yfirlýst markmið um samfélagslega ábyrgð, skyldur við nærsamfélagið og ábyrga umgengni við náttúruna eru löguð að fyrirætlunum og framkvæmd, þ.e. "heildsölu á raforku til stórnotenda innan rammaáætlunar.
Efnisorð
Stóriðja; raforkuframleiðsla; raforkudreifing; nýsköpun.
Heildartexti:
PDFDOI: https://doi.org/10.13177/irpa.a.2016.12.2.17
Baktilvísanir
- Engar baktilvísanir
Útgefandi er Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.
Kerfið er vistað af Reiknistofnun Háskólans.