Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Laxness
Útdráttur
Í þriðju bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Kiljan Laxness er skáldinu fylgt eftir frá árinu 1948 til dauðadags 1998. Á þessu tímabili hlýtur Halldór Laxness Nóbelsverðlaun í bókmenntum og skrifar skáldsögurnar Gerplu, Brekkukotsannál, Paradísarheimt, Kristnihald undir Jökli og Guðsgjafarþulu auk smásagna, leikrita, minningabóka og annarra verka. Á bókarkápu segir að Halldór Laxness hverfi á þessu tímabili frá fyrri róttækni og gerist efagjarn húmanisti, breytist úr vígamanni í þjóðskáld.
Heildartexti:
PDFBaktilvísanir
- Engar baktilvísanir
Útgefandi er Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.
Kerfið er vistað af Reiknistofnun Háskólans.