Eiríkur Bergmann Einarsson: Opið land: Staða Íslands í samfélagi þjóðanna
Útdráttur
Opið land, staða Íslands í samfélagi þjóðanna, eftir Eirík Bergmann Einarsson kom út á vegum bókaforlagsins Skruddu á vormánuðum 2007. Eiríkur er forstöðumaður Evrópufræðaseturs á Bifröst og dósent í stjórnmálafræði við félagsvísindadeild skólans. Hann hefur í á annan áratug fjallað um Evrópumál - og ekki síður þjóðmál - á opinberum vettvangi, sem pistlahöfundur í dagblöðum og tímaritum, sem álitsgjafi í fréttum, sem talsmaður Evrópusambandsins á Íslandi, (en Eiríkur er einn fárra Íslendinga sem hafa starfað fyrir það), svo og bæði sem stjórnmálamaður (Eiríkur var varaþingmaður Samfylkingarinnar kjörtímabilið 2003-2007) og sem fræðimaður. Opið land er fjórða bók höfundar, en fyrri bækur eru Ísland í Evrópu, Evrópuúttekt Samfylkingarinnar 2001, sem Eiríkur ritstýrði, Evrópusamruninn og Ísland, sem kom út á vegum Háskólaútgáfunnar 2003 og Glapræði, sem er skáldsaga og kom út á vegum áðurnefndrar Skruddu 2005.
Heildartexti:
PDFBaktilvísanir
- Engar baktilvísanir
Útgefandi er Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.
Kerfið er vistað af Reiknistofnun Háskólans.