Nýtt norrænt jafnvægi. Öryggisstefnur Norðurlandanna og áhrif þeirra á Ísland

Höfundar

  • Silja Bára Ómarsdóttir
  • Baldvin Þór Bergsson

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2010.6.2.3

Útdráttur

Öryggismál Íslands eru í endurskoðun í kjölfar brottfarar Bandaríkjahers frá landinu. Þótt stefnumótun sé enn ólokið hefur m.a. verið litið til aukins samstarfs við önnur ríki Norðurlanda. Í greininni er farið yfir öryggisstefnur Norðurlandanna í ljósi nýlegra breytinga á Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins þar sem samstöðuákvæði er sett inn í sáttmálann. Skoðað er hvaða áhrif þessar breytingar gætu haft á Ísland og stöðu þess. Öryggisvæðingarkenningar Ole Wævers og Kaupmannahafnarskólans í alþjóðasamskiptum eru notaðar til að varpa ljósi á ólíkar nálganir Norðurlandanna í varnarmálum. Leitað er fanga í öryggis- og varnarmálastefnum Norðurlandanna fjögurra en í ræðum utanríkisráðherra á Íslandi, þar sem engin formleg öryggisstefna hefur verið mótuð. Niðurstöður greiningar á öryggisstefnum Norðurlandanna eru að þau muni að öllum líkindum halda áfram að starfa með NATO og ESB á ýmsum vettvangi, þótt einkum Noregur, Svíþjóð og Finnland geti haft hag af auknu samstarfi. Ísland virðist munu hagnast lítið á auknu norrænu samstarfi eins og því sem lagt er til í Stoltenberg-skýrslunni, enda væri dýpkun þess líklega táknræn fremur en hagnýt.

Um höfund (biographies)

  • Silja Bára Ómarsdóttir
    Aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
  • Baldvin Þór Bergsson
    M.Sc. í alþjóðakenningum.

Niðurhal

Útgefið

15.12.2010

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar