Réttarumhverfi félagasamtaka á Íslandi
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2011.7.2.12Lykilorð:
Félagasamtök, almennfélög, sjálfseignarstofnanir, alþjóðleg flokkunarkerfi.Útdráttur
Þrátt fyrir fjölda félagasamtaka og þýðingarmikið samfélagslegt hlutverk þeirra eru ekki í gildi heildarlög á Íslandi um starfsemi þeirra eins og um flest önnur félagaform. Í greininni er fjallað um þær reglur sem þó gilda um starfsemi félagasamtaka eða almennra félaga eins og þau eru nefnd í félagarétti. Auk skilgreiningar á félagaforminu er þeim reglum lýst sem gilda um stofnun þeirra, félagsaðild, skipulag, ábyrgð og skuldbindingar. Einnig er rætt um þá reglu um gjörð sem gildir um tekjuöflun félagasamtaka, atvinnustarfsemi, skattlagningu og fjárveitingar frá hinu opinbera. Gerður er samanburður á félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum sem starfa á sambærilegum vettvangi.Niðurhal
Útgefið
15.12.2011
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi
Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.