Áhrif niðurskurðar á starfshvata og innbyrðis þekkingarmiðlun heilsugæsluhjúkrunarfræðinga

Höfundar

  • Emelía Jarþrúður Einarsdóttir
  • Ingi Rúnar Eðvarðsson
  • Sigríður Halldórsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2012.8.2.10

Lykilorð:

Niðurskurður, starfshvatar, þekkingarmiðlun, hjúkrunarfræðingur, heilsugæsla.

Útdráttur

Tilgangur greinarinnar er tvíþættur: Í fyrsta lagi að greina áhrif niðurskurðar í kjölfar efnahagshrunsins á helstu starfshvata hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu og í öðru lagi að greina áhrif niðurskurðarins á þekkingarmiðlun innan sama hóps. Rannsóknaraðferðin var eigindleg, byggð á Vancouver-skólanum í fyrirbærafræði. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við tíu hjúkrunarfræðinga sem allir starfa í heilsugæslu og voru þeir valdir með tilgangsúrtaki. Niðurstöður eru þær helstar að í kjölfar niðurskurðarins upplifðu þátttakendur aukið álag, þreytu, tímaskort og óvissu. Laun og starfsöryggi reyndust sterkari starfshvatar en áður og neikvæð áhrif komu fram á endurmenntun og starfsþróun. Tímaskortur og verkefnaálag hamlaði þekkingarmiðlun sem átti sér stað fyrir tilviljun en tekist hefur að standa vörð um þekkingarmiðlun sem var í skipulegu ferli. Vel þarf að huga að niðurskurðaraðgerðum og áhrifum þeirra á starfshvatningu heilbrigðis stétta og viðurkenningu í starfi.

Um höfund (biographies)

  • Emelía Jarþrúður Einarsdóttir
    Hjúkrunarfræðingur.
  • Ingi Rúnar Eðvarðsson
    Prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
  • Sigríður Halldórsdóttir
    Prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.

Niðurhal

Útgefið

12.04.2025

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)