Leyfi til raforkuframleiðslu – Skyldur ríkja samkvæmt raforkutilskipuninni í ljósi reglna um jafnræði og gagnsæi
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2014.10.2.17Lykilorð:
Raforkuframleiðsla, leyfi, tilskipun 2009/72/EB.Útdráttur
Í greininni er fjallað um það fyrirkomulag leyfa til raforkuframleiðslu, sem mælt er fyrir um í 7. gr. tilskipunar 2009/72/EB um innri markað raforku. Fyrirkomulagið á að stuðla að greiðum aðgangi að framleiðslu raforku og virkri samkeppni. Leitað er svara við því hvaða skyldur ríkin verða að uppfylla samkvæmt reglum 7. gr., einkum í ljósi krafna um jafnræði og gagnsæi í málsmeðferðinni, og jafnframt hvort reglurnar þjóni tilgangi sínum. Færð eru rök fyrir því að óljóst sé hvaða skyldur reglurnar leggi á ríkin. Þær taki ekki nægilega vel mið af því hve málsmeðferð vegna leyfa til að reisa og reka raforkuver er ólík og flókin í aðildarríkjunum og því hve raforkuver eru ólík að stærð og gerð.Niðurhal
Útgefið
15.12.2014
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi
Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.