Samanburður á störfum og starfsánægju sérfræðinga í einkafyrirtækjum og hjá hinu opinbera

Höfundar

  • Ingi Rúnar Eðvarðsson
  • Arney Einarsdóttir
  • Ásta Dís Óladóttir
  • Inga Minelgaite
  • Sigrún Gunnarsdóttir
  • Svala Guðmundsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2021.17.2.4

Lykilorð:

Sérfræðingar, opinber félög, einkafyrirtæki, hönnun starfa, starfsánægja.

Útdráttur

Markmið greinarinnar er að bera saman mat sérfræðinga hjá hinu opinbera og einkafyrirtækjum á starfshönnun (e. job design) og almenna starfsánægju (e. global job satisfaction) þeirra. Niðurstöður byggja á gögnum sem safnað var árið 2018 meðal hjúkrunarfræðinga, stjórnenda og verkfræðinga og bárust 342 svör og svarhlutfallið 32%. Starfshönnun var mæld á fjórum víddum, einkennum verkefna og þekkingar, félagslegum einkennum og samhengi starfsins. Niðurstöður gefa vísbendingar um að sérfræðingar í einkafyrirtækjum meta samhengi starfs síns betra en sérfræðingar hjá hinu opinbera en sérfræðingar hjá hinu opinbera meta einkenni þekkingar meiri í sínum störfum, einkum þörfina fyrir fjölbreytileika í færni og sérhæfingu verkefna. Þá eru einnig vísbendingar um að sérfræðingar í einkafyrirtækjum búi við betri aðstæður og aðbúnað á vinnustöðum og minni líkamlegar kröfur, á meðan störf sérfræðinga í opinbera geiranum kalla á fjölbreyttari færni og meiri sérhæfingu. Þá meta sérfræðingar hjá hinu opinbera mikilvægi starfs síns hærra en sérfræðingar í einkageiranum. Ekki greinist munur á starfsánægju þessara tveggja hópa, né á félagslegum þáttum starfsins, en báðir hópar eru að meðaltali nokkuð ánægðir í starfi. Niðurstöður samanburðar veita innsýn í flókið samspil starfshönnunar og starfsánægju sérfræðinga bæði hjá hinu opinbera og í einkafyrirtækjum og eykur skilning á því hvað laðar starfsfólk til starfa hjá hinu opinbera og viðheldur hvatningu starfsfólks þar til góðra verka. Niðurstöður gefa einnig vísbendingar um að bæta megi um betur varðandi samhengið og draga úr líkamlegum kröfum í störfum sérfræðinga hjá hinu opinbera.

Um höfund (biographies)

  • Ingi Rúnar Eðvarðsson
    Prófessor við Háskóla Íslands.
  • Arney Einarsdóttir
    Dósent við Háskólann á Bifröst.
  • Ásta Dís Óladóttir
    Dósent við Háskóla Íslands.
  • Inga Minelgaite
    Prófessor við Háskóla Íslands.
  • Sigrún Gunnarsdóttir
    Prófessor við Háskóla Íslands.
  • Svala Guðmundsdóttir
    Prófessor við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

12.12.2021

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 221

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>