Carl Bernstein og Bob Woodward: All the President´s Men: 30th Anniversary Edition

Authors

  • Heiðar Örn Sigurfinnsson

DOI:

https://doi.org/10.13177/irpa.c.2005

Abstract

Þann sautjánda júní árið 1972 voru fimm jakkafataklæddir menn handteknir við innbrot í höfuðstöðvar Demókrataflokksins í Watergate byggingunni í Washington borg. Þeir höfðu meðferðis mikið magn hundrað dollara seðla og hlerunartæki sem þeir hugðust koma þar fyrir. Þetta var upphafið að Watergate málinu. Í minnisbókum sem fundust á innbrotsþjófunum fannst á tveimur stöðum nafn Howards Hunt sem hafði unnið fyrir Hvíta húsið. Eftir að hafa komist á snoðir um tengsl milli innbrotsþjófanna og Hvíta hússins eyddu fjölmiðlamenn næstu misserum í að upplýsa um hver fyrirskipaði hvað í Watergate málinu, hver vissi hvað og hvenær. Fremstir í flokki fjölmiðlamanna fóru Bob Woodward og Carl Bernstein, blaðamenn á Washington Post sem flettu ofan af mörgum einstaklingum og athöfnum sem tengdust Watergate.

Published

2005-12-15

How to Cite

Sigurfinnsson, H. Örn. (2005). Carl Bernstein og Bob Woodward: All the President´s Men: 30th Anniversary Edition. Icelandic Review of Politics & Administration, 1(1). https://doi.org/10.13177/irpa.c.2005

Issue

Section

Book Reviews