Davíð Logi Sigurðsson: Velkominn til Bagdad - ótti og örlög á vígvöllum stríðsins gegn hryðjuverkum
DOI:
Abstract
Þýski heimspekingurinn Hegel sagði að uglan Minerva, tákn viskunnar, hæfi sig til flugs þegar rökkva tæki. Þegar bardaganum er lokið og rykið tekið að setjast, þá fyrst öðlumst við yfirsýn og fellum okkar dóma. Háskólamenn eru því gjarnan seint á ferðinni, enda rannsóknir tímafrekar og þekkingaröflun vandmeðfarin. Hið svokallaða stríð gegn hryðjuverkum, sérstaklega innrásin í Írak, er þessu marki brennt. Sjálfsagt eru ennþá nokkur ár í að verulega bitastæðar doktorsritgerðir um Íraksstríð verði kláraðar í einhverju magni. En þær koma, um það getum við verið viss.Downloads
Published
2007-12-15
Issue
Section
Book Reviews
License

This work is licensed under a Creative Commons Attribution 4.0 License.