Silja Bára Ómarsdóttir: Ný staða Íslands í utanríkismálum - tengsl við önnur Evrópulönd

Authors

  • Guðni Th. Jóhannesson

DOI:

https://doi.org/10.13177/irpa.c.2007.3.2.12

Abstract

Þegar Ísland verður gengið í Evrópusambandið mun fræðafólk og annað áhugalið eflaust lesa þetta litla rit til að glöggva sig á aðdraganda þeirra miklu tímamóta. Nú þegar gagnast ritið þeim sem vilja fræðast um stöðu Íslands í Evrópusamrunanum, á þessum skrýtnu tímum þegar helst er deilt um hvort "Evrópumálin" séu "á dagskrá" eða ekki. En það mun væntanlega breytast á næstu árum. Afstaða Íslands til Evrópusambandsins gæti orðið mál málanna hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Bókin er byggð á nær samnefndri ráðstefnu sem Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hélt í nóvember 2006, "Ný staða í utanríkismálum - tengsl Íslands við önnur Evrópulönd". Allir nema einn þeirra sem fluttu erindi á ráðstefnunni birta þau í bókinni og tveimur greinum var bætt við, frá Jónasi H. Haralz og Þorvaldi Gylfasyni.

Published

2007-12-15

How to Cite

Jóhannesson, G. T. (2007). Silja Bára Ómarsdóttir: Ný staða Íslands í utanríkismálum - tengsl við önnur Evrópulönd. Icelandic Review of Politics & Administration, 3(2). https://doi.org/10.13177/irpa.c.2007.3.2.12

Issue

Section

Book Reviews