Guðmundur Magnússon: Nýja Ísland - listin að týna sjálfum sér

Authors

  • Arnar Þór Másson

DOI:

https://doi.org/10.13177/irpa.c.2008.4.2.6

Abstract

Í umsögn gagnrýnanda kemur meðal annars eftirfarandi fram: Bók Guðmundar er skemmtileg. Hún er ágætt innlegg í mun dýpri umræðu sem þarf að fara fram um þróun íslensks samfélags á undanförnum árum og í framtíðinni, sérstaklega í ljósi þess áfalls sem riðið hefur yfir þjóðina síðan bókin kom út... Þrátt fyrir að það sé hárrétt hjá Guðmundi að margt hafi misfarist á nýja Íslandi og græðgi, sérgæska og fyrirhyggjuleysi geti, eins og komið hefur á daginn, steypt þjóðinni í mikil vandræði stenst umfjöllunin um hin mikla mun milli gamla og nýja Íslands ekki nánari skoðun. Hann dregur upp of jákvæða mynd af því gamla og neikvæða af því nýja. ...Hann dregur fram mörg dæmi um óhóflega eyðslu auðmanna og hvernig þeir féllu kylliflatir í gryfju broslegs hégóma. ...Þessi hluti bókarinnar er athyglisverður og skemmtilegur og gerir hana fyllilega þess virði að lesa hana.

Author Biography

Arnar Þór Másson

Stjórnmálafræðingur.

Published

2008-12-15

How to Cite

Másson, A. Þór. (2008). Guðmundur Magnússon: Nýja Ísland - listin að týna sjálfum sér . Icelandic Review of Politics & Administration, 4(2). https://doi.org/10.13177/irpa.c.2008.4.2.6

Issue

Section

Book Reviews