Barnabókmenntir í skólastarfi: Byrjendalæsi og grunnþættir menntunar

Höfundar

Lykilorð:

byrjendalæsi, barnabókmenntir, grunnþættir menntunar

Útdráttur

Núgildandi menntastefna á Íslandi, sem birt er í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla, er reist á sex grunnþáttum menntunar sem byggjast á því viðhorfi að menntun hafi bæði gildi fyrir einstaklinginn sjálfan og samfélagið. Grunnþættirnir eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Þeir eiga að vera leiðarljós í skólastarfi frá leikskóla til framhaldsskóla og fléttast inn í allar námsgreinar.

Barnabókmenntir geta opnað sýn inn á ólík svið samfélags og umhverfis og gefa tækifæri til að vinna með þau atriði sem falla undir grunnþætti menntunar. Í þessari grein er fjallað um niðurstöður rannsóknar á því hvernig grunnþættir menntunar birtast í vinnu út frá barnabókum í 1. og 2. bekk í skólum sem nota kennsluaðferðina Byrjendalæsi.

Rannsóknargögn voru sótt í gagnagrunn sem til varð í umfangsmikilli rannsókn á Byrjendalæsi á árunum 2013–2015. Gögnin sem unnið var með eru úr vettvangsathugunum í sex skólum sem nota Byrjendalæsi, viðtölum við kennara í sömu skólum og kennsluáætlunum fyrir þær vikur þegar vettvangsathuganirnar fóru fram.

Í kennsluaðferðinni Byrjendalæsi eru barnabækur notaðar á markvissan hátt í læsiskennslu og sýndu niðurstöðurnar að í Byrjendalæsisvinnunni gáfust einnig tækifæri til að vinna með grunnþættina sex út frá efni bókanna. Í mörgum tilvikum nýttu kennarar þessi tækifæri vel. Unnið var með læsi á fjölbreyttan hátt út frá bókunum, sköpun skipaði mikilvægan sess í náminu og dæmi voru um umræður sem tengja mátti lýðræði og mannréttindum og heilbrigði og velferð. Færri dæmi voru um beina vinnu með grunnþættina jafnrétti og sjálfbærni. Auk þeirra möguleika sem aðferðin gefur til umfjöllunar um grunnþættina út frá efni og inntaki bókmenntanna er öll umgjörð Byrjendalæsis vel til þess fallin að vinna að markmiðum grunnþáttanna um lýðræðisleg vinnubrögð, samvinnu og virka þátttöku allra.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biographies)

  • Rannveig Oddsdóttir
    Rannveig Oddsdóttir (rannveigo@unak.is) lauk leikskólakennaranámi frá Fósturskóla Íslands 1994, meistaranámi frá Kennaraháskóla Íslands með áherslu á sérkennslu 2004 og doktorsprófi frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands 2018. Rannveig kenndi um árabil í leik- og grunnskólum en starfar nú sem sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Rannveig hefur á undanförnum árum einbeitt sér að rannsóknum á þróun máls, læsis og ritunar hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri.
  • Halldóra Haraldsdóttir
    Halldóra Haraldsdóttir (hh@unak.is) er dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún er menntaður talmeinafræðingur frá Statens Spesiallærerskole í Bærum í Noregi 1977, lauk Cand. Polit-prófi í félagsuppeldisfræðum frá Háskólanum í Osló 1989 og M.Ed.-prófi í stjórnun frá háskólanum í Bristol 1994. Halldóra starfaði fyrst sem leikskólakennari, um árabil sem talmeinafræðingur við þjálfunarskóla ríkisins á Sólborg og fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra og síðar sem skólastjóri við Hvammshlíðarskóla og Giljaskóla. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að máli og læsi.
  • Jenný Gunnbjörnsdóttir
    Jenný Gunnbjörnsdóttir (jennyg@akureyri.is) lauk kennaranámi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1991 og meistaranámi í lestrarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2010. Jenný kenndi um árabil í grunnskóla og starfaði síðar sem sérfræðingur á Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og sem aðjúnkt við kennaradeild Háskólans á Akureyri þar sem hún einbeitti sér að námi og kennslu í læsi. Hún starfar nú sem sérkennsluráðgjafi á Fræðslusviði Akureyrarbæjar.

Niðurhal

Útgefið

2018-02-04