Listkennsla sem fag
Guðrún Erla Geirsdóttir myndmenntakennari
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/serritnetla.2023.7Lykilorð:
myndmennt, námsefnisgerð, kennsluhættir, starfsumhverfi, Guðrún Erla GeirsdóttirÚtdráttur
Myndmennt er skyldunámsgrein í grunnskólum og ein þeirra námsgreina sem fellur undir list- og verkgreinar. Myndmenntakennarar eru sérgreinakennarar sem kenna flestum árgöngum grunnskólans frá miðstigi upp á unglingastig. Myndmenntakennsla fer fram í sérútbúinni skólastofu og benda rannsóknir til að myndmenntakennarar eigi yfirleitt í takmörkuðum samskiptum við aðra kennara. Fáar íslenskar rannsóknir hafa verið gerðar á starfi myndmenntakennara innan kennslustofunnar og takmörkuð þekking er til staðar á því hvernig kennsla fer fram, hvaða námsefni er notað í kennslunni og hvernig kennslan samræmist markmiðum aðalnámskrár. Í þessari rannsókn er spurt um kennsluhætti, námsefnisgerð og aðbúnað eins kennara, Guðrúnar Erlu Geirsdóttur sem segir frá þróun kennsluaðferða sinna sem myndmenntakennari við Langholtsskóla í Reykjavík á árunum 1996–2017. Guðrún Erla lýsir einnig starfsumhverfi sínu og breytingum sem gerðar voru á skólastarfinu á tímabilinu. Markmið rannsóknarinnar er að kynnast kennsluháttum eins myndmenntakennara af fagvettvangi myndlistar með sterka sýn á hlutverk sitt í starfi. Við öflun gagna var stuðst við eigindlega frásagnaraðferð sem er talin geta veitt þekkingu á starfi kennarans. Niðurstöður sýna að menntun Guðrúnar Erlu í kennslufræðum, reynsla hennar af fagvettvangi myndlistar og gildistaka aðalnámskrár 1999 hafa haft mótandi áhrif á kennsluhætti hennar í myndmennt, sem samræmast áherslum fagmiðaðrar listkennslu.
Niðurstöðurnar veita innsýn í starfsaðstæður og aðbúnað eins myndmenntakennara og varpa ljósi á hvernig reynsla, menntun og bakgrunnur ásamt opinberri stefnumótun og aðbúnaði hafa áhrif á nám og kennslu í myndmennt.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2023 Margrét Elísabet Ólafsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).
