„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2025.21.2.6

Lykilorð:

Skipulag, stjórnsýslulegt bolmagn, fagleg geta

Útdráttur

„Græna gímaldið“ er hugtak sem notað hefur verið í opinberri umfjöllun um byggingu atvinnuhúsnæðis við Álfabakka 2A í Reykjavík. „Græna gímaldið“, eða „Græni veggurinn“ eins og einnig hefur verið vísað til málsins, var stöðugt fréttaefni undir árslok 2024 og fram eftir ári 2025, eftir að framkvæmdir hófust og byggingin fór að taka á sig mynd. Stærð, útlit og notkun byggingarinnar hefur vakið umræðu um ýmislegt tengt skipulagsmálum svæðisins – gæði skipulags og mannvirkjahönnunar, íbúalýðræði við skipulagsgerð og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar í skipulags- og byggingarmálum.

Í málinu kristallast kunnugleg álitamál tengd stjórnsýslulegu bolmagni og faglegri getu í skipulagsmálum. Það gefur tilefni til að greina út frá stjórnsýslu- og skipulagsfræðum hvað virðist hafa farið úrskeiðis við undirbúning framkvæmda í Álfabakka 2A og hvað er af því að læra; hvort málið virðist vera einstakt eða hvort ætla megi að í því birtist kerfisbundnir veikleikar í stjórnsýslu skipulagsmála hér á landi.

Í greininni eru tekin fyrir afmörkuð atriði sem lúta að skipulagi svæðisins og gerð tilraun til að varpa ljósi á framangreint. Niðurstöður leiða í ljós ýmsa veikleika í framkvæmd skipulagsmála varðandi uppbyggingu í Álfabakka 2A. Takmarkaðar rannsóknir liggja fyrir á framkvæmd skipulagsmála hérlendis og því erfitt að fullyrða hvort það sem reynir á í þessu máli er einstakt eða birtingarmynd kerfisbundinna veikleika. Þó styður fyrirliggjandi þekking á framkvæmd skipulagsmála hérlendis ályktanir um að mál Álfabakka 2A sé birtingarmynd áskorana sem eiga almennt við framkvæmd skipulagsmála hérlendis og sýni fram á þörf á umbótum í regluverki, stefnumótun og framkvæmd skipulagsmála.

Niðurhal

Útgefið

16.12.2025

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 156

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.