Orðtök og samskiptafrasar í dönsku og dönskunámi

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.33112/millimala.17.1.6

Lykilorð:

dönsk orðtök, samskiptafrasar, orðaforðatileinkun, samanburður við íslensku

Útdráttur

Föst orðaforðasambönd gegna mikilvægu hlutverki í öllum tjáskiptum og eru grundvallaratriði í venjubundinni málnotkun innan tiltekins málsamfélags. Þau eru algeng í töluðu og rituðu máli og skipta sköpum fyrir viðeigandi og kurteisislega málnotkun. Í greininni er fjallað um orðtök og samskiptafrasa í dönsku í samanburði við íslensku, á grundvelli rannsóknar höfundar á efninu. Helstu niðurstöður eru dregnar fram og ræddar í samhengi við dönskunám íslenskra nemenda. Niðurstöðurnar sýna að mörg dönsk orðtök og samskiptafrasar eiga sér beina samsvörun í íslensku, aðrir eru frábrugðnir að meira eða minna leyti, og enn aðrir eiga sér enga hliðstæðu. Aðrar rannsóknir benda til þess að áhersla í dönskukennslu beinist oft að lesskilningi og ritun, en að talmáli sé minni gaumur gefinn, þrátt fyrir að þar gegni föst orðasambönd lykilhlutverki. Tileinkun orðtaka getur því reynst nemendum mikil áskorun, einkum þegar orðasambönd eiga sér ekki hliðstæðu í móðurmáli eða eru ólík með ófyrirsjáanlegum hætti. Máltækið frasar.net var þróað með það að markmiði að auðvelda tileinkun og notkun orðtaka og samskiptafrasa á dönsku, jafnt í ræðu sem riti.

Niðurhal

Útgefið

2025-12-17

Svipaðar greinar

1-10 af 193

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.