„Ég ætla ekki að láta þetta foreldri stjórna hvernig ég kenni“

Starfsaðstæður kennara sem sinna hinsegin fræðslu

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2025/4

Lykilorð:

hinsegin fræðsla, grunnskólar, framhaldsskólar, kennarar, hinsegin, starfsaðstæður

Útdráttur

Markmið þessarar rannsóknar er að öðlast innsýn í upplifanir kennara sem sinna hinsegin fræðslu gagnvart hinsegin bakslagi og hvort og þá hvernig það birtist þeim innan veggja skólans. Rannsóknin er eigindleg og aflað var gagna í gegnum fimm einstaklingsviðtöl og skrifleg svör 39 þátttakenda í eigindlegri spurningakönnun. Allir þátttakendur starfa í grunn- eða framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og sinna hinsegin fræðslu að einhverju leyti á sínum starfsvettvangi. Þreifað er á hugmyndum þátttakenda um bakslag gegn hinsegin réttindum sem hefur verið nokkuð sýnilegt hérlendis. Niðurstöður benda til þess að fræðslan virðist einungis á ábyrgð ákveðinna einstaklinga, sem hamlar faglegu starfi upp að vissu marki. Í viðtölunum kom í ljós að viðmælendur upplifðu það sem svo að starfsfólk fríaði sig almennt ábyrgð og ætlaðist til þess að aðrir sæju til þess að fræðslunni væri sinnt.

Niðurstöður sýna að bakslagið birtist innan veggja skólanna, en samt sem áður er hinsegin fræðsla oftast ómarkviss eða sjaldgæf. Viðmælendur merkja aukna niðrandi orðræðu meðal nemenda sem kallar á meiri hinsegin fræðslu en einnig upplifir starfsfólk meiri viðspyrnu gegn slíkri fræðslu frá foreldrum og aðstandendum nemenda. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa tilefni til frekara inngrips bæði frá stjórnvöldum og skólastjórnendum til að tryggja inngildingu á öllum skólastigum.

Um höfund (biographies)

  • Anna Mae Cathcart-Jones

    Anna Mae Cathcart-Jones (annamaecj@gmail.com) lauk B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á samfélagsgreinar árið 2022 og M.Ed.-prófi í kennslu samfélagsgreina vorið 2024. Hún starfar sem grunnskólakennari í Kópavogi.

  • Auður Magndís Auðardóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Auður Magndís Auðardóttir (ama@hi.is) er lektor í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í menntavísindum árið 2021 og hefur kennt fög á borð við félagsfræði menntunar og fjölskyldna frá árinu 2018.

  • Íris Ellenberger, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Íris Ellenberger (irisel@hi.is) er dósent í samfélagsgreinum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í sagnfræði árið 2013 og hefur kennt samfélagsgreinar og samfélagsgreinakennslu síðan 2019.

Niðurhal

Útgefið

2025-03-03

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar