Fjölmennustu flokkar heims. Meðlimaskipulag íslenskra stjórnmálaflokka
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2010.6.2.1Útdráttur
Ísland hefur þá sérstöðu meðal lýðræðisþjóða að mun hærra hlutfall kjósenda er skráð í stjórnmálaflokka en þekkist annars staðar. Þetta vekur spurningar um eðli og hlutverk flokksaðildar og kallar á skýringar á sérstöðu Íslands. Auk þess hefur meðlimum stjórnmálaflokkanna fjölgað hér á landi, þvert á reynsluna í öðrum löndum. Víða um heim veldur fækkun meðlima í stjórnmálaflokkunum áhyggjum, en spyrja má hvort mikill fjöldi meðlima í þeim íslensku sé heilbrigðismerki á íslenska flokkakerfinu. Í þessari grein er leitast við að kortleggja og skýra meðlimaþróun íslensku stjórnmálaflokkanna með hliðsjón af kenningum um skipulag stjórnmálaflokka. Forsenda mikils meðlimafjölda er að aðild að flokkunum er í raun frígæði á Íslandi en þróun prófkjaranna hefur átt meginþátt í því að gera þá möguleika til fjölgunar meðlima sem frígæðin skapa að veruleika.Niðurhal
Útgefið
15.12.2010
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.