Framkvæmd stefnu um menntun fyrir alla á Íslandi: Viðhorf skólafólks og tillögur um aðgerðir
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/netla.2021.7Lykilorð:
menntastefna, menntakerfi, menntun fyrir alla, skóli án aðgreiningar, lærdómssamfélag, framkvæmd stefnuÚtdráttur
Menntun fyrir alla er einn af meginþáttum þeirrar stefnu sem íslenskt skólakerfi er byggt á. Í úttekt Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir (hér eftir Evrópumiðstöðin) á framkvæmd stefnunnar, sem var birt 2017, kom fram að þrátt fyrir að stefnan væri skýr hefði skólasamfélagið hvorki skýra mynd af hugtakinu menntun án aðgreiningar né fullnægjandi skilning á hvað skólastarf á þeim grundvelli fæli í sér. Markmið greinarinnar er tvíþætt: Í fyrsta lagi að draga saman niðurstöður 23 funda sem haldnir voru um allt land á vegum stýrihóps Mennta- og menningarmálaráðuneytisins um menntun fyrir alla haustið 2018 með það fyrir augum að skapa umræðu um stefnuna. Til fundanna voru boðaðir fulltrúar leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, frístundaþjónustu, foreldrafélaga, skólaskrifstofa, félags- og skólaþjónustu auk heilsugæslu. Niðurstöðurnar eru byggðar á greiningu á umræðuverkefni sem lagt var fyrir á hverjum fundi þar sem þátttakendur komu sér saman um mikilvægustu breytingar sem gera þyrfti, og forgangsröðun þeirra, til að styrkja menntun fyrir alla í íslenska skólakerfinu. Í öðru lagi er markmið greinarinnar að leggja fram tillögur greinarhöfunda um aðgerðir til að efla menntun fyrir alla í íslenskum skólum. Þær eru byggðar á niðurstöðum umræðuverkefnisins ásamt niðurstöðum úttektarskýrslu Evrópumiðstöðvarinnar frá 2017. Þær eru settar í samhengi við fræðilegan bakgrunn menntunar fyrir alla og enn fremur líkan af vistkerfi menntunar með það fyrir augum að greina á hvaða stjórnsýslustigum menntakerfisins ábyrgð á framkvæmd hvers þáttar liggur.##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
##plugins.themes.default.displayStats.noStats##
